Daginn
Ég hef lesið mörg bloggin um dagana, þau eru jú jafn misjöfn og þau eru mörg en það allra besta, allra allra besta er án efa blogg konunnar minnar. Það var reyndar ekki það sem ég ætlaði að tala um heldur bloggið hans
Sigmars (Zygmars) fréttamanns. Maðurinn er án efa fullkominn snillingur og hef ég ákveðið að hætta að halda með FRAM og gerast Zygmari í staðinn.
Hann talaði um daginn um hana Sylvíu Nótt og þykir hún kúl. Ég hinsvegar verð að segja að mér finnst Sylvía mjög önkúl. Ég trúi bara ekki að þessi stúlka, Ágústa Eva, sé með öllu mjalla. Ég fílaði hana, í fullri alvöru, mér fannst hún æði....framan af. En núna, já, núna er hún meira að segja búin að tapa virðingu og skilyrðislausri ást dóttur minnar sem dýrkaði þennann torkennilega fyrrv. gleðigjafa. Orðin voru einhvernvegin svona:
Pabbi (ég): Nei sjáðu, þarna er Sylvía Nótt í sjónvarpinu.
Arndís: Þetta er bara Ágústa Eva Erlendsdóttir.
Pabbi (aftur ég): Já, finnst þér hún ekki svo skemmtileg?
Arndís: Neehhh. (Hélt svo áfram að lita mynd af stelpu í ballet)
Þannig að ef að Sylvía nýtur ekki minnar hylli? og ekki sex ára barna, já og ekki eldri borgara (amma gamla lét útúr sér þá frægu setningu í kringum júróvisjón í fyrra að "þetta þarna væri sko ekki íslendingur", þið getið rétt ímyndað ykkur hversu argur eldri borgari er orðinn þegar hann afneitar íslendingi) Já, fyrir hvern er hún þá? Ef hún er komin á það stig að það fílar hana enginn, nema kannski hún sjálf og aparnir í kringum hana...
...já og ekki orð um að ég sé egocentriskur.
En jæja, kominn tími á að hætta, á morgun er V- dagurinn, jibbs, það er dagurinn þegar J. Vopni Thorarensen mætir í skipholtið og tekur til við að míga á gólfið. Við Skipholtshjónin verðum væntanlega lítið við ca. næstu vikurnar, verðum bissí í að skúra og segja "NEI".
Góðar stundir
Snæþór
ps. alltaf nýjar myndir í Glamúr shots